Smávegis um bandið
Hljómsveitin Hraun var stofnuð 16. júní árið 2003 þegar hljómsveitarmeðlimir komu saman með engum fyrirvara og spiluðu í partýi á kaffihúsinu Kaffi Vín. Hljómsveitin umbreyttist fljótt og fór að spila meira frumsamið efni. Varð sveitin reglulegt húsband á grasrótartónlistarstaðnum Café Rósenberg.
Viðfangsefni Hrauns er hið mannlega ástand og flóra þess. Því nefnir hljómsveitin tónlistarstefnu sína "Mood Swing" eða geðsveiflu. Aðrir hafa kallað tónlistina þjóðlagaskotið rokk, þunglynt þjóðlagapopp eða polkaþrungið þungarokk. En hvernig sem tónlistin er flokkuð leitast Hraun við að senda góða strauma í hjörtu og sálir hlustenda sinna
Hraun gefur á hverju ári út jólaplötu til styrktar góðu málefni og eru þær nú orðnar fimm talsins. Auk þess gaf Hraun út Partýplötuna partý árið 2005.
Fyrsta breiðskífa Hrauns, I can't believe it's not happiness, kom út 11. júní 2007 hjá Dimmu ehf. Platan var m.a. plata vikunnar á Rás 2 og fékk góða rýni hjá gagnrýnanda Rásar 2.
Í desember 2007 komst Hraun í fimm sveita úrslit keppninnar "The Next Big Thing" sem BBC World Service stendur fyrir. Þar spiluðum við í útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar fyrir fjögurra manna dómnefnd og sal áhorfenda og hlutum lof fyrir frammistöðu okkar. Fréttamaður BBC sagði þó að hljómsveitarmeðlimir hefðu "chunky" líkamsbyggingu sem seint væri líkleg til vinsælda hjá strákabandi. Hann er á listanum...
Hér má finna umsögn blaðamanns sem var á staðnum.
Önnur plata Hrauns, Silent treatment, kom út 16. júní 2008. Hún er beint framhald af Happiness og tekur fyrir reiði, angist, mannleg samskipti og að geta hlegið að sjálfum sér og brosað framan í lífið.
Meðlimir Hrauns eru:
Svavar Knútur - Söngvari og gítarleikari
Svavar Knútur er sveitastrákur í húð og hár, en hefur neyðst til að búa í Reykjavík meira en helming ævi sinnar. Svavar hefur næstum nördalegan áhuga á umhverfis- og samfélagsmálum. Hann hjólar næstum allt sem hann fer og elskar að spila á gítar fyrir börn. Svavar á það til að ráðast á fólk með tilfinningar og gítar að vopni. Svo hefur hann undarlegar þráhyggjur eins og að halda niðri í sér andanum þegar hann mætir fólki sem honum finnst ófrýnilegt og klóra sér alltaf jafn mikið hvoru megin.
Hann getur drukkið stóran bjór á 3,5 sekúndum og þrjá stóra bjóra á 25 sekúndum. Hann er ekki stoltur af þeim hæfileika.
Jón Geir - Trommuleikari og söngvari
Ísfirðingurinn Jón Geir Jóhannsson er mest viðutan meðlimur Hrauns og er þá mikið sagt.
Jón Geir er einnig án efa best klæddi og snyrtilegasti meðlimur sveitarinnar, en hann er ætíð gríðarvel til fara og með afskaplega fallegt og tígulegt hrokkið hár.
Jóni Geir þykir ekkert skemmtilegra en að spila á stöðum þar sem er einhvers konar málmdót í kringum trommusettið sem hann getur gripið í. Sérstaklega elskar hann ef einhvers konar lúðrar eru nálægt til að blása í af áfergju. Jón Geir kann ekki að prjóna og smíðar þess vegna trommusettin sín sjálfur.
Þess má til gamans geta að Jón var kosinn fallegasti meðlimur Hrauns af aðdáendum í óformlegri kosningu.
Guðmundur Stefán - Gítarleikari og söngvari
Oft kallaður Gummi Frændi, til að aðskilja hann frá öllum hinum Gummonum.
Gummi frændi er dásamlegt eintak af manneskju, sem hefur yndi af því að spinna tónvefi kringum hljóma og laglínur. Þá sækir hann sér innblástur og skammast sín ekki fyrir það.
Guðmundi finnst sinnep ekki gott.
Loftur Sigurður - Bassaleikari og söngvari
"Sauðfjárbóndinn" Loftur Sigurður leikur lystilega á bassann í Hraun. Þessi hægláti en hárprúði Sunnlendingur virkar á óinnvígða sem hið mesta letidýr, enda opnar hann sjaldan augun til annars en að leita sér að nýjum legustað. Þó á hann það til að bresta í æðisköst á sviði og hoppa um eins og mannýgur bavíani.
Loftur hefur einnig farið hamförum sem "Loftur litli Loftsson" og sungið "Litla Jólabarn" við gríðargóðar undirtektir áhorfenda.

