The Next Big Thing

Eru Hraun The Next Big Thing??

Loftur S. Loftsson

Þetta byrjaði sem hugdetta sem Jón Geir fékk á leiðnni í vinnuna þegar hann var að hlusta á BBC Worldservice í bílnum sínum. Það var verið að auglýsa eftir tónlist hvaðanæva að úr heiminum og vinningshafinn fengi að spila á 75 ára afmæli BBC sem er núna seinna í desember.

Hann sendi inn Ástarsöguna úr Fjöllunum og skrifaði fallegan texta um umhverfishljóðin og aðstæður við upptökuna á laginu. Lagið er tekið upp í risastórum lýsistanki í gömlu síldarbræðslustöðinni í Djúpuvík á Ströndum. Það má heyra fossin sem niðar aðeins ofar í hlíðinni og dropa sem falla úr lofti tanksins niður í polla sem hafa myndast í botninum bergmála í þessu stóra rými.

Núna um helgina fengum við svo að vita að við hefðum verið ein af tuttugu hljómsveitum sem voru valdar úr einhverjum þúsundum listamanna frá áttatíu og átta löndum.

Þann 3. Des. Næstkomandi velur dómnefnd svo 5 atriði sem fá tækifæri til að fara til Bretlands þann 9. Des og flytja lagið í úrslitakeppni um hver er "The Next Big Thing 2007". Sigurvegarinn spilar svo á 75 ára afmælis hátð BBC viku seinna.

Góðir hlutir gerast greinilega hratt!

Endilega kíkið á heimasíðu kepninnar og hlustið á hin atriðin. Sjálfur er ég ógurlega skotinn í Afríkönsku hljómsveitunum og þá sérstaklega hljómsveitinni Yunasi frá Kenya með lagið Ndi Ndi Ndi (Usilewe)

http://www.bbc.co.uk/worldservice/thenextbigthing/

Hér er hlekkur á MySpace síðu keppninnar:

http://www.myspace.com/bbcbigthing

 



Skráning á póstlista

Skráðu þig á póstlista Hrauns

Hljómsveitin Hraun