Við erum komnir áfram!!!

Hraun er komin í 5 banda úrslit í "The Next Big Thing 2007" á BBC World Service.

Loftur S. Loftsson

Það er með sanni hægt að segja að við séum með Knút í maganum núna. Það er svolítið óþægilegt vegna þess hve stór hann er orðinn.

Núna eru fimm hljómsveitir eftir í Keppninni. Þær eru:

Hraun

Yunasi

Maya McCallum et La Toy Factory

Jeremie Johnson

Vrelo

Á vef BBC má finna nánari upplýsingar um þessi fimm bönd og umsagnir dómara.

Næsta skref hjá okkur er svo að undirbúa okkur andlega og líkamlega undir að fara til London um næstu helgi og flytja lagið í hljóðveri BBC.

Einmitt núna erum við að búa til myndefni sem verður sýnt áður en við förum á svið. Einvhernvegin sýnist mér að þetta verði ákaflega týpískt landkynningar myndband. Vonandi verður þetta ekki alveg jafn dásamlegt og myndbandið sem ICY hópurinn sendi í Júróvísion. Allavega, þarna verðum við að stilla okkur upp með mismunandi ósnortna náttúru í bakgrunni og svo förum við í sund og tökum nokkur "slo mo" myndskeið á bökkunum í rauðu sundskýlunum okkar.

Endilega kíkið við á "Mittfés" síðu keppninnar og segið eitthvað fallegt um okkur.

 



Skráning á póstlista

Skráðu þig á póstlista Hrauns

Hljómsveitin Hraun