Útgáfudagur ákveðinn þann 7. júní 2008
Þá höfum við fest útgáfudag á "Þar sem ernirnir sökkva" en upptökum er alveg að ljúka hjá okkur. Við tekur svo hljóðblöndun en við reiknum með að vera búnir með alla vinnu í lok apríl. Hver veit nema að við komum eins og einu lagi í spilun áður en platan sjálf kemur út. Þið getið skráð ykkur á póstlistann okkar til að fá fregnir af plötunni sendar til ykkar.

