Útgáfutónleikar heppnuðust einstaklega vel
Takk kærlega fyrir okkur. Tónleikarnir heppnuðust rosalega vel og mætingin var framar öllum vonum en við töldum til um 350 manns í húsinu. Af þeim sökum munum 10 íslenskar geitar verða ættleiddar.
Undirbúningur stóð yfir alveg fram á síðustu stundu en ljóst var að mikil spenna var í loftinu. Við vorum sjálfir að fara á límingunum yfir þessu öllu saman og þegar var ljóst í hvað stefndi hvað varðar mætingu, þá fórum við beint í að bera inn fleiri stóla fyrir áhorfendur sem að var pínkulítið fyndið.
Við spiluðum í gegnum plötuna í réttri röð en það er hefð sem komið var á með útgáfu fyrstu plötunnar okkar. Við erum voða hrifnir af því að leyfa fólki að upplifa plötuna á tónleikum á þann hátt sem við hugsuðum hana.
Tónleikarnir gengu stórslysalaust fyrir sig en við vorum í rosalega góðum gír sjálfir, vel stemmdir og í alveg svakalega góðu skapi.
Þegar lögunum 10 sem eru á plötunni var lokið, þá vorum við klappaðir upp og tókum við þá Ástarsöguna og svo nýtt lag sem verður líklegast á lokahluta þríleiksins okkar eða s.s. næstu plötu, en það heitir "Undir birkitré".
Þá tókum við okkur smá hlé til að hitta fólk og spjalla en það var fljótlega ljóst að hér varð ekki staðar numið og töldum við fljótlega í aftur. Það endaði með því að við spiluðum nær stanslaust til um 3 um nóttina en fólk dansaði og dansaði og skemmti sér hið besta með okkur.
Það kom meira segja upp sú staða að allur bjór kláraðist, sem kemur meira til út af því að enginn hafði reiknað með þessari svakalegu mætingu.
Takk kærlega til allra sem sáu sér fært að koma og fagna útgáfunni með okkur, þetta var algerlega ógleymanleg stund.

